09 júní 2004

Það er svo lítið líf hérna að mar verður að láta vita af sér...
Við fengum bílinn á föstudaginn og eins og búist var við þá er búið að rúnta töluvert amk um hlegina, þá var kíkt á ma og pa á laugardaginn til að þrífa og bóna kvikindið og ná í hundkvikindið, enda farin að sakna hennar... eftir fegrunaraðgerðnar var skellt sér á laugarvatnsrúnt að montast aðeins og svo rennt í bæinn... um kvöldið gerðist sá óvenjulegi atburðuð að það var kíkt í bíó á disaster æland, eða betur þekkt sem the day after tomorrow... ágætis afþreying það... á sunnudag tókst mér svo að brenna á mér axlirnar og bringuna í garðvinnu þannig að það er ekki hægt að segja að ég hafi algjörlega misst af sólarsumrinu... vonandi að ég sé þá bara búin með brunaskammtinn minn í sumar...
Ansi sorgleg þáttaka í þessa útilegu, verður erfitt að kíkja ef það verða bara 8 manns þar... þannig að kannski við Erla hrindum því í framkvæmd að standsetja hitting... sá td að Stefáns segist til í að hýsa okkur, það væri td flott... Svo þá tókst mér að redda mér frí 16.júní til að geta skellt mér í óvissuferð með vinnunni þannig að við the L&H foresome verðum kátar kátar kátar...
Allavegana þá ætti þetta að duga í bili....