Jæja nú er ég komin heim úr vinnunni og það helst að frétta að hálfur Hafnarfjörður er kominn með lús. Maður verður að vera með e-r fyrirbyggjandi aðgerðir held ég bara ef ekki á að fara illa fyrir manni.
Annars get ég ekki beðið eftir óvissuferðinni! það hefur svo litið gerst hjá mér síðan sumarfríið byrjaði (sem er af hinu góða) að ég hef ekkert annað að hlakka til! Kíkti reyndar aðeins í innflutningspartý hjá vinkonu vinkvenna minna á lau. Æðisleg íbúð sem hún hafði keypt með þvílíku útsýni yfir hafið. Væri alveg tilí eina svona. Mætti samt vera stærra svefnherbergi allavega fyrir minn smekk.
14 júní 2004
Birt af gudrunst kl. 18:38
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|