21 júlí 2004

Jæja girlís, þá er komið að því
Staður og stund hefur verið ákveðinn fyrir alsherjar kjaftatörn lybbagella!
Stefáns er gullkonan í þessu sambandi þar sem hún hefur tekið að sér að vera hýsillinn undir þennan atburð....
Stund er stíluð sem föstudagskveldið næstkomandi, nánar tiltekið 23.júlí árið 2004
Tímasettning mun vera klukkan tuttuguhundruð (kl 8 að kveldi til fyrir þá sem ekki eru að sér í hermálum)
Ætlunin er að allar komi með eikkað gotterí úr eigin vörslu, gaman ef e-r nennir að gerast myndarleg í eldhúsinu og ef einhver tekur að sér nammi í eftirrétt og ætli góður kostur sé ekki að hver sjái um sig í gosneyslu því ekki erum við allar sammála á því sviðinu...
Dagskráin er gott og vel óskipurlagt kjaft að okkar eigin hætti, fréttaflutningur og hlátrasköll...
Endilega skellið inn í kommentarann hvað þið ætlið að koma með svo við endum ekki á einhæfu "fæði" þetta kvöld...
Einnig skilið inn ef þið komist ekki svo við getum sannfært ykkur um annað ;) og svo er líka gaman að vita hverjar koma svo  við höfum ekki áhyggjur af því að e-r hafi ekki séð fréttatilkynninguna...