Hey, kannski kominn tími á að sýna smá líf hérna... búin að vera að hugsa um það lengi en aldrei komið mér að því, en nú er greinilega rétti tíminn ... amk letilega séð...
Takk fyrir síðast by the way... besti slúður-átveislu-hittingur í langan tíma!!!
Annars langar mig nú mest að monta mig (og fyrir hönd Kötlu líka reyndar) á því að þegar þið byrjið í skólanum þá verðum við liggjandi á sólarstöndinni á Costa del Sol með bjórinni í annari og kokteilinn í hinni ;) ójú, við erum á leið í sólina að sóla okkur og hressa uppá fataskápinn (enda þarfnast minn heldur betur lagfæringar) til að verðum nú örugglega sætastar þegar herlegheitin byrja...
úff, hvað annað, eila ekkert merkilegt... nema ég viðurkenni að ég er orðin spennt fyrir stundaskrá en er nokkuð viss um að þessar skrifstofublókir þarna valdi mér bömmer aftur eins og í fyrra með því að vera langsíðastir með töflurnar...
aníhú... þartil næst...
05 ágúst 2004
Birt af Nafnlaus kl. 21:27
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|