06 ágúst 2004

Hneyksl saga vikunnar
Mar blókar um hvað lífið sé nú tilbreytingalaust og þá bara gerast undur og stórmerki... eða svona næstum, ég er amk það hneyksluð að ég get ekki haldið þessu lengur inni :)
Þegar við erum ný skriðin uppí rúm um kl 12 þá lýsist upp allt herbergið okkar... við nánari athugun þá var búið að setja upp meiriháttar kastara sem lýsti upp alla garða kringum leikskólan (sem er húsið við hliðina á okkur) og leikskólabakgarðinn... þar sáum við að Jakob Frímann var mættur á svæðið og fundum þá út að verið var að taka upp nýju Stuðmanna-myndina á leikskólanum, við vonuðum bara að það væri verið að taka upp ekki-tónlistarsenur og steinrotuðumst enda dauðþreytt eftir slæma nætursvefni alla vikuna... um 03:20 vöknuðum við upp við að það voru tónleikar á leikskólanum og ómögulegt var að sofna... ég sendi kallinn út (enda miklu grimmari en kellingin) og hann gerði sig illan, sagði þeim að drullast til að hætta eða hann hringdi á lögguna ef það heyrðist svo mikið sem lítið múkk frá þeim meira... kl 4 erum við að sofna eftir hljóða stund en þá byrjar partýið aftur... COMMON!!! Hringjum á lögguna sem ætlar að mæta á svæðið en sagði að ef þeir hefðu leyfi þá gætum þeir ekkert gert... Halló!!! ekki gáfum við neitt leyfi fyrir því að það væri party í næsta garði alla aðfaranótt föstudags... um kl 04:30 þá hætti partyið því greinilega var orðið of bjart til að hægt væri að taka upp þessa senu... ekki það að löggan væri mætt (ekki nema það hafi verið dverglöggur sem sáust ekki úr íbúðinni okkar) eða að ákveðið væri að leyfa nágrönunum að hvíla sig rétt í nokkra stund áður en mætt væri í vinnuna heldur því birtan var ekki rétt....
Ég þarf nottla ekki að taka það fram að ég var að slitna úr þreytu í morgun og í dag og þar sem heppnin mín virðist hafa skroppið í frí þá var að sjálfsögðu brjálað að gera í dag og svona mátulega mikill skammtur að leiðinlega fólkinu, þið vitið þessu sem nöldrar út af öllu...
En ég hafði hina nautsterku Erlu Siggu mér við hlið, hún stóð mannflóðið af með mér...
Allavega, þetta er hneyksl saga vikunnar... vonandi þarf ég ekki að segja neinar fleiri af eigin reynslu á næstunni...