Í gær fór ég í bleikt partý/saumaklúbb sem var reyndar óvenjufámennur því helmingurinn af stúlkunum er fluttur af landi brott. Það áttu allir að mæta í bleikum fötum og við borðuðum bara bleikan mat og drukkum bleikt gos. Það fyndna var samt að ég var eiginlega bara klædd eins og á venjulegum degi. Fór reyndar í bleiku stígvélin en ekki strigaskóna og þau nota ég ekki mjög oft og líka bleika sparijakkann en ekki þann venjulega. Hinar stelpurnar voru bara í bleikum bolum og það var nú ekki svo mikið.
Ég eyddi þvílíkum tíma í að pikka út allt bleika nammið í nammilandi í Hagkaupum. var alveg að veiða úr (svo er bleika nammið ekki einu sinni best!) Laug að starfskonunni að ég væri að kaupa fyrir afmæli litlu systur því hún horfði svo undarlega á mig. Þá gaf hún mér þennan svip sem afgreiðslufólk setur upp þegar viðskiptavinirnir segja e-ð svona "Akkuru ertað segja mér það" - svipinn.
25 september 2004
Birt af gudrunst kl. 13:04
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|