hmm... verð nú að segja að ég er orðin soldið leið á þessu útliti hjá okkur... er orðið soldið svona döll eikkað... langar í eikkað ferskt eins og Ella er með... en ég nenni samt ekki að finna neitt út úr því núna... vill þá frekar snúa mér að læridóminum, td að klára þessar skýrslur fyrir næstu viku... planið í augnablikinu er það að geta klárað allt sollis dótarís vesenis lærerí um helgina (ásamt því að vinna og mæta í saumó) ss dæmatíma og undirbúining í verklegt og sollis leiðindardóterí og nota svo tímann í næstu viku til að "dunda" sér bara við lestur á hinu og þessu... ma nýrum og veiruörnum :)
iss... annars en nú lítið að frétta... og virðist vera hjá öllum eikkað... því bloggheimurinn liggur næstum bara niðri... hvernig neitt að gerast... og þá sérstaklega hérna... enda nennir mar ekki að setjast niður og "segja" frá ekki neinu... (ss svona uþb það sem ég er að gera núna samt)... fann það samt út í dag að hin æðri öfl eru að segja mér að fara til tannsa... bæði spurði mamma mig um daginn hvort ég væri búin að fara og svo hringdi tannsakellingin í mig í dag... þannig að þegar við förum næst í verklegt í lífeðl þá ætla ég að skrá mig í tilrauna tannsa eftirlit á tönnunum mínum... verst er að ég er tannsa hrædd... og svo stefnir mar á að láta nema sjá um þetta allt saman... er það ekki gott dæmi um sjálfspyndingu?
01 október 2004
Birt af Nafnlaus kl. 15:29
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|