Ég væri alveg til í að klippa bara á kennslu núna, fá 1,5 viku til að lesa í sinn haus, taka svo prófin og ljúka þessu af, þ.e. færa þetta fram um 1/2 mánuð og fá svo 1/2 mánuð þar sem mar mætti ekki gera neitt... það væri bannað að vinna og mar ætti bara að slaka á, væri lögbundið frí... er nebbla komin á þreytta tímabilið... drullast varla framúr og skipurlegg daginn í huganum með það fyrir augunum að vera rosa dúgleg að gera þetta og hitt og drífa annað af svo ég geti lagt mig í smá stund... rúmmið mitt á semsagt hug minn allan þessa dagana... sýnist ég samt ekkert vera sú eina því það fækkar og fækkar í tímum hjá okkur sem eru kl 8...
Þetta blogg er sem sagt til heiðurs þessa dags í dag en hann er semsagt mánuð frá fyrsta prófdegi... ekki það að það þurfi að minna ykkur á það! ;)
Fimmkommanull
11 nóvember 2004
Birt af Nafnlaus kl. 09:57
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|