Oh... ég er svo klár!!
Reyndar er ég eila meira gleymin en klár, ég er nebbla eila meira gleymin en allt annað, gleymin er það orð sem lýsir mér hvað mest! ha, nei, ég bara gleymdi því...
Sumt er slæmt að gleyma... td þegar mar gleymir lengi að hengja upp úr þvottavélinni... gleymi því soldið oft þar sem þvottavélin er ekki inn í íbúðinni, td ekki inn á klósetti þar sem ég sé hvort hún sé í gangi, tóm eða full af blautum fötum sem þarf að hengja upp svo það komi ekki vond lykt í þau... oftast reyndar set ég í vélina um daginn og man það svo rétt áður en ég sofna að ég á eftir að hengja upp... það er verst að muna eftir því sollis... vera komin undir heita sængina og þurfa að rífa sig framúr fyrir blautan kaldan þvott...
þannig að ég fann upp mjög mjög sniðugt system... klippti út efnisbút sem ég saumaði úr lítin öskupoka (reyndar stærri en öskupokarnir voru í gamladaga)... utan á öskupokan, sem ég kalla reyndar þvotta pokan minn, saumaði ég svo mynd af bala með vatni í og 40° á, svona eins og þvottamerkið er í fötunum okkar... svo þegar ég set í vélina þá hengi ég þvottapokan á hurðina sem skilur að íbúðina mína frá sameigninni því þar sé ég hann alltaf þegar ég labba um... þá nebbla man ég að það er þvottur í vélinni og ég þarf að hengja hann upp... og það gerist yfirleitt alltaf á réttum tíma nú orðið!!! já, ég segi það satt... þetta er frábær hugmynd!!! svona er það, þegar mar er svona gallaður (og gleymskan mín er nottla eini gallinn minn) þá verður mar bara að vera sniðugur í staðinn og redda sér framhjá svona hættugildrum!!!
...svo er annað mál hvort ég man að setja þvottapokann minn upp þegar ég er búin að setja í vélina.... ;)
18 nóvember 2004
Birt af Nafnlaus kl. 12:11
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|