25 janúar 2005

Góðan daginn, ég er svo gleymin að ég ætti að fá verlaun fyrir þann einstaka hæfileika. Ég var búin að fá lánaðar örverufræðiglósurna hennar Guðrúnar Stefáns og vona að það boð standi ennþá og ætlaði ég að taka þær á föstudagin fyrst að ég var nú heima hjá henni ,en nei ég mundi eftir því daginn eftir sem var soldið seint því að ég var á leiðinni á rútuna. Svo er ég búin að skipta um herbergi aftur og er komin í stærra herbergið og get því haft skrifborðið mitt uppi sem er ágætt því að ekki veitir af að hafa pláss til að læra. Ástæðan fyrir því að ég gat flutt í stærra herbergið er sú að LITTLA sistir er flutt í bæinn til kærastans. Ekki er ég neitt öfundsjúk út í hana því ekki langar mig í kærasta eða finnst að ég ætti að vera á undan að flytja til kærastans minns nei nei ég er bara sátt við það að búa ennþá heima hjá mömmu og pabba!!! ok kanski soldið mikið öfundsjúk. jæja ætla að hætta þessu væli og fara að læra og koma mér svo í klippingu.