sjitt hvað ég ruglaðist tótaly...
vaknaði ~hálf 8 í morgun og er búin að vera að gera lífrænu skýrsluna, var svo ofboðslega áhugasöm um þetta að ég fattaði ekki hvað tímanum leið og svo allt í einu voru 10mín í tíma, ég tek mig til og stekk út í bíl og man þá að ég ætlaði eila að fara miklu fyrr af stað til að taka bensín á bílinn, voru bara nokkrir kílómetrar eftir á tanknum (elskulegi tæknilegi bíll) þannig að ég skrepp að taka bensín og er ekki nema 5 mín of sein, ekkert mál, hef lent í því áður og hef nú alveg ná að skrifa alla eðlislyfjafræði lönguvitleysuna eftir hann, en neinei, þegar ég gæjist inní stofuna þá eru óvenju margir þar, andlit sem ég þekki ekki alltof vel og einhver kvennmansrödd að babla, semsagt 1.árið í lífeðlisfræði (þau eru greinilega voða dugleg að mæta, amk ennþá) og þá fatta ég að ég átti að vera í lífefnafræði, mér finnst bara alltaf að eðlislyfjafræði sé þessi eini tími á mánudögum... þá eru 10mín búnar af tímanum og ég tók smá bílastæðarúnt en aaallt fullt eins og líklegast kennslustofan... þannig að ég fékk sjálfskipað frí í dag, og það á eina deginum sem ég hef vaknað fyrr en ég þurfti !!
24 janúar 2005
Birt af Nafnlaus kl. 10:13
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|