hæbbs, þetta er nú búinn að vera meiri dagurinn!!!!! hann byrjaði nú eins og hver annar dagur ég vaknaði kl 6 og tók rútuna kl 6:45 og það skóf bara svona aðeins í einni beigju í kömrunum en ekkert mál og vorum bara aðeins lengur á leiðinn heldur en vanalega sem var allt í lagi því að ég þurfti ekki að mæta fyrr en kl 9:45. Fór svo aðeins fyrr úr efnafr. til þess að ná 12:30 rútunn eins og alltaf, og mikið rosalega varð mér kallt á leiðinni á bsí en það er önnur saga, svo Guðrún litla komst á rútuna þótt að hún væri soldið köld svo var rútan ný lögð af stað þegar hún mamma mín hringdi til að spyrja mig hvernig veðrið væri í bænum og ég sagði náttla bara að það væri fínt veður, þá sagði hún mér að það hefði verið sagt í fréttunum að það væri þungfært í kömrunum og ég sagði henni að vera alveg róleg það væri ábyggilega bara smá fok og svo heirði ég einhvern spyrja bílstjórann hvort að það væri vont á heiðinni og hann sagðist ekki halda það. Svo allt í lagi við lögðum af stað og þegar við komum út úr bænum þá minkaði skyggnið smátt og smátt þangað til að það sást bara ekki neitt!!! Þegar við komum svo á heiðina eða ég helda allavegana að við vorum á heiðinn þá fórum við að keira fram hjá bílum sem voru búnir að keyra út af á kaf í snjóinn, við héldum áfram og að lokum sá ég að við værum að fara að leggja af stað niður kamrana og fjölgaði bílunum sem voru búnir að keira út af eða keira á aðra bíla þegar við vorum búin að mjakast áfram í svona 20 mín og enn í kömrunum var all STOPP!! og það var stopp í rúmar 40 mín en logsins var okkur bjargað og ég var svo fegin því að ég var búin að vera 2 kl tíma á leiðinni. Að lokum komst ég í Hveragerði, nei nei þetta var ekki búið við fórum þessa venjulegu leið en komumst hana svo ekki því að það var KJÖRÍS bíll þvert yfir götuna þannig að við fórum hina leiðina inn í Hveragerði en nei við festumst!! EN okkur var bjargað aftur, takk björgunarsveit, að lokum þá komst ég heim eftir aðeins ÞRJÁ KLUKKUTÍMA í rútu en ef það vita það ekki allir þá á þetta að taka tæpan klukkutíma með rútu.
En þetta var svosum allt í lagi, ég lifði þetta af.
Sjáumst svo hressar og kátar á föstudaginn:)
19 janúar 2005
Birt af Nafnlaus kl. 18:22
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|