07 apríl 2005

Æjh... ég nenni bara engan vegin að byrja á því að leggjast yfir öll þessi skemmtilegu róf til að finna út óþekktu efnin mín... sérstaklega þar sem ég hef sterklega á tilfinningunni að mér hafi dreymt NMR og Massaróf síðastliðnar 2 nætur, er samt ekki viss, held þetta hafi verið svona undirmeðvitunda martraðir!!
Annar eru helstu fréttir af mér svona fyrir utanaðkomandi lesendur (ætli þeir séu nokkrir?) að ég er komin með sumarvinnu!!! Mín datt bara í lukkupottinn og verð í geymsluþolsprófunum hjá Actavis í sumar :) :) Við Eydís verðum geymsla og mæling í sumar, hlið við hlið (vonandi eitthvað amk)
en, var að fatta að ég gleymdi að skila inn smá umsókn fyrir Axel sem er skilafrestur á kl 16:15 í dag... spurning um að drífa sig í það svona til að standa við loforð!!!