15 apríl 2005

Ótrúlega er líflegt hér ;) En til að bæta aðeins úr því langaði mig barað segja frá því að við Ella gella erum að farað sýna magadans á e-i rosa sýningu í Tjarnarbíói laugardaginn 23.apríl kl.1700. Sem betur fer fáum við byrjendurnir að byrja því það væri erfitt að koma á eftir þeim sem lengra eru komnir. Sá aðeins úr dönsunum þeirra á æfingu um daginn og vá!! enda ætlum við einn daginn að verða svo góðar ;)
Við eigum að fara á æfingu á morgun og þá verður gaman að sjá hvort maður sé sýningarhæfur hehe. Hef nú aðeins verið að æfa sporin og kann þau það er ekki málið! Aðal málið er að geta gert hreyfingarnar sem maður veit að maður á að verað gera. Til dæmis eins sem heitir camel það var nú nógu erfitt að læra hana þangað til maður átti alltí einu að gera öfugan camel!!

En ég mæli með sýningunni fyrir alla sem eru leiðir á próflestri :) ( og vilja koma og kannski hlæja pínku að mér hehe)