26 apríl 2005

Jæja, þá er það byrjað, og þegar ég segi það þá er ég að meina sá yndislegi tími þegar mann byrjar að dreyma námsefni...
ég komst amk hálfa leiðina í nótt... var að rembast við að lesa aðeins meira í lífefnafræði í gær áður en ég dembi mér í tæknina í dag og svo vaknaði ég (þó varla sé hægt að tala um að vakna, heldur svona rétt að komast til meðvitundar) með aðra nösina gjörsamlega stíflaða til helv**** í nótt... og ég hugsaði með mér: æj, ég hef myndað umfam magn af ATP, það er allt komið í nösina á mér og stíflar hana !!!
já, hversu kexruglaður getur maður orðið á þessum tíma !?!?!