Ég var heima í veikindum mínum áðan og fékk þá sendingu frá sumarbúðunum. Í henni ver meðal annars heilsuskýrsla sem ég og læknir eigum að fylla út og svo visa umsóknin undirrituð af þeim úti sem ég þarf að fara með í sendiráðið. Ég ákvað nú barað geyma heilsuskýrsluna þar sem ég var barað drepast úr veikindum hehe og vinda mér í visa umsóknina.
Í henni var ein spurning sem var svona: Have you any special skill regarding or have you any: firearms, bombs, nuclear weapons, biological weapons, drugs or chemical experience.
Þá var ég nú heldur betur komin í vandræði...þetta er pottþétt hryðjuverkamannadálkurinn. En ég neyddist til að merkja í hann þar sem ég get sannarlega ekki neitað því að eiga e-a chemical experience....og drugs ef út í það er farið, þ.e.a.s ef þetta eru lyfjadrugs en ekki eiturlyfja drugs. Nú lendi ég í e-i voða yfirheyrslu þar sem ég verð tekin í gegn fyrir að reynað komst inní USA með chemical experience í farteskinu! Ég vil bara biðja ykkur að komað heimsækja mig í hryðjuverkamannafangelsið ætli það verði ekki bara Guantanamo!
22 apríl 2005
Birt af gudrunst kl. 22:56
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|