05 maí 2005

Ég er auli! í morgun hringdi ég á heilsugæslustöðina til að panta tíma en lenti bara á bið....í 44 mín! þá gafst ég upp og skellti á mjög pirruð. Svo þurfti ég líka að hringja þarna í lyf og heilsu glæsibæ og var búnað kvíða mikið fyrir því, og reynað æfa hvað ég ætti að segja svo það kæmi ekki svona illa út...það svaraði aldrei neinn og ég hringdi 3!!
svo fattaði ég núna áðan að það er frídagur...