04 maí 2005

jæja, þó alltaf sé gaman að fá "fréttir" af gömlum félögum þá þurfum við víst að læra líka, er ekki um að gera að mynda hér smá læri-umræðu, maður er hvort eð er alltaf að "aðeins" að kíkja á netið í þeirri von um að einhversstaðar sé líf, hér kemur lífið:
-gerið grein fyrir Michaelis-Menten jöfnunni og teiknið ferilinn sem lýsir sambandi upphafshraða ensímhvataðra hvarfa mtt styrk hvarfefnis- hvað meinar hann? á maður bara að setja upp jöfnuna og segja hverju hún lýsir eða á mar kannski að fara í gegnum útleiðslu jöfnunnar... þessi spurn gildir 6% ætli mar eigi ekki bara að sýna jöfnuna og teikna hyperboluna og segja hvað mar geti fundið út úr myndinni?...
annars eru flest allar spurningarar 6%... finnst soldið erfitt að meta hvað mar á að segja mikið, ætli mar eigi að babla endalaust... um sumt er líka bara takmarkað sagt (bæði í glósubók og kennslubók)... hvað segiði um þetta skvísur?