03 maí 2005

Hæbbs, jamm ég er á lífi:) Það er eitt sem ég skil ekki og það er af hverju er alltaf svona gott veður þegar við erum í prófum en um leið og við erum búnar þá byrjar að rigna. Er verið að prófa okkur í því hversu mikið við viljum verða lyfjafræðingar!! Svo er prófhausverkurinn minn mættur á svæðið en ég ætla ekki að láta veðrið eða hausverkinn koma í veg fyrir að ég komist loksins á annað ár. þannig að ég ætla að fara að demba mér í efnagreininguna, vona að ykkur gangi öllum rosalega vel í prófunum.