Ég hef aldrei verið eins leið með það að ná prófum eins og í dag, ég semsagt fékk loksins út úr þessum sumarprófum og komst að því að ég náði almennu 1 og örverufræði sem þíðir að ég hefði getað farið upp á annað ár þótt að ég eigi eftir stæ.gr. En eins og þið vitið nú flestar þá er ég búin að skipta um braut og er semsagt í sálfræði. Ég er búin að hugsa mikið HVAÐ EF ég hefði bara byrjað á 2. ári í dag. En jæja sálfræði skal það vera. Svo er bara rosamikið að gera í barnamálum hjá mér, vinkona mín eignaðist stelpu í júni, sistir vinkonu minnar stelpu í júlí, bróðir minn eignaðist strák 22 ágúst( rosalega sætur) og svo var vinkona mín að eignast stelpu núna 11 septenber. Rosalega mikið af stelpum:) Nú ætli það sé ekki best að fara að LESA ,ekki reikna heldur lesa, alltaf gott að læra eitthvað nýtt.
13 september 2005
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|