11 september 2005

Er ekki e-r að gera e-ð spennandi um helgina? Er ekkert að frétta? Ég hef sjálf bara gert lítið sem ekkert. Fór ekki í Vökupartýið sem ég ætlaði á föstudaginn sökum þreytu! Vaknaði snemma á laugardaginn og fór e-ð að vesenast.
Hitti svo íslensk/amerísku stelpuna mína hana Alex og við fórum í Kringluna. Það var mjög gaman. Ég er allavega enn ónæm fyrir búðum eftir dvöl mína í USA sem er MJÖG gott ég keypti alltof mikið þar og það er ekkert pláss í fataskápnum og kommóðunni minni. Einn sokkur í viðbót og ég mun ekki getað lokað skúffunni....
svo fór ég í æðislegt matarboð í gær, fékk æðislegan kalkún:) og litli frændi minn reyndi að kveikja í...hann segist þó skilja að eldur sé hættulegur núna og ekki ætla að prófa það aftur!
Í dag ætlaði ég að vera voða dugleg að læra en ég hef ekki verið það. Hins vegar tók ég til í herberginu mínu og bakaði pönnukökur sem er alveg ágætis árangur!