05 september 2005

Ég kom við í bóksölunni í hádeginu, vantaði ýmislegt smádót (var reyndar crowded en töffarinn ég lét það ekki stöðva sig)... á undan mér í biðröðinni var stelpa og vinkona hennar með henni, held hún (þær) hafi verið að læra spænsku og byrjuðu í skólanum í dag (þvílíka leti-lúxus deildin!). Eftir smá tíma skreppur önnur eikkað og hin hittir vinkonu sína... fer þá að segja frá að hún hafi nú verið að byrja í skólanum í dag og væri búin í einu tíma í dag sko, og sko, kennanrinn, mar, hún bara kenndi alveg þangað til klukkan var á slaginu 12 sko...
æj, ég bara fann svo til með stúlkugreyinu... þurfa að vakna á mánudegi til að mæta í þennan eina tíma rétt fyrir hádegi og svo kennir kennarinn alveg bara allan tíman!!! æj... ég var nú að spá í að reyna að kæta hana með því að benda henni á að ég hefði verið til í að skipta við hana á hennar eina tíma rétt fyrir hádegi og á mínum 3 í röð á fim frá 8-12 þar sem allir voru kenndir út allan tímann... en ég bara vorkenni henni of mikið sko mar....
er annars ekkert líf hérna ?!?!