23 september 2005

Hér kemur klukkið mitt

1. Ég hef einu sinni lent í slagsmálum. Það var þegar ég var 12 ára í Reykjaskóla (var þar í viku með skólanum) og ég og frænka mín börðum hvor aðra í klessu. Það var öllum aðferðum beitt, hártogi eftir 20 m löngum gangi, spörkum, ofl.

2. Ég er búin að vera í hjúkrunarfræðideild, stærðfræðideild og er núna í lyfjafræðideild. Gæti nú samt alveg hugsað mér að prófa eitthvað annað, veit bara ekki ennþá hvað svo ég held ég haldi bara áfram í lyfjafræðinni.

3. Ég er hrædd við köngulær. Það er bara eitthvað svo ógeðslegt við þær og vefinn þeirra. Þurfti einu sinni að fá að fara bakdyramegin út hjá vinkonu minni vegna þess að stór hlussu könguló var að sveiflast fram og til baka fyrir framan útidyrahurðina hjá henni.

4. Ég hef einu sinni verið tekin fyrir of hraðan akstur. Það var í fyrra og ég skil ekki að þeir skuli ekki hafa náð mér fyrr, er nú búin að hafa bílprófið í 6 ár. Ég er nú samt farin að slaka aðeins á bensíngjöfinni núna.

5. Ég er sjónvarpssjúk og get horft á nánast allt, nema Guiding light. Það er bara eitthvað við þann þátt sem fer í taugarnar á mér.