jæja þá ætli maður verði ekki að klukkast e-ð, hef samt ekki neitt spennandi að segja hér!
en...
1. Ég var skömmuð á 1. vinnudegi mínum í River Ranch Day camp fyrir að vilja ekki fara með Pledge of Allegiance og Girl Scout promise....auk þess söng ég ekki The Aligator song sem er alls ekkert lag samkvæmt íslenskum stöðlum heldur öskur (vantar sko stuðla, innrím og alles!)
2. Mr. Gum er til í alvörunni og ljóðið byggist því á staðreyndum (öll 4. erindin)
- you stick to me just like gum
- grabbed all my hand when I gave you my thumb.
- You like me, but I don´t like you!
- Believe it or not, it´s true!
3. Ég hef verið áskrifandi að Lifandi Vísindum alveg frá byrjun og les það eins og sumir lesa Kóraninn. Ég á öll blöðin og fletti oft í gegnum þau.
4. Uppáhaldssjónvarpsþátturinn minn er Sex and the City. Ég kann seríurnar nokkurn vegin utan að og stúlkurnar eru eins og persónulegir vinir. Stundum tala ég með þáttunum þegar ég er ein! í NY náði ég mér í sex and the city götukort og naut þess að ráfa um og skoða merka staði úr þáttunum!
5. Mig hefur alltaf langað að fara til Rússlands og af því tilefni ákvað ég að læra rússnesku með heldur slökum árangri!
- Myenya zavoot Guðrún
- Mi eez Islandesa
og já þetta tók bara heillangan tíma!!
23 september 2005
Birt af gudrunst kl. 12:39
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|