jæja hvað haldið þið stúlkur mínar nema að ég og Ella höfum verið að koma frá spákonu! og þessari líka fínu spákonu! Ég var bara hrædd við að hugsa ef hún skyldi nú lesa hugsanir líka!!
Hún sagði ýmislegt...sumt er kannski ekki alveg eftirhafandi á netinu fyrir allra augum! en í megin atriðum sagði hún að veturinn yrði frábær hjá mér, ýmislegt nýtt að gerast og gamalt til að passa sig á. Til dæmis ný tækifæri í vinnu/námi sem myndi opna mér margar dyr, og e-a 2 karlmenn sem hafa mikla trú á mér til góðra verka. Ekki slæmt það!
Auk þess jafnvel að ég færi kannski að flytja að heiman með vorinu (shit ér sko ekki tilbúin undir það!).
Svo sá hún magadansinn að sjálfsögðu og sagði að hann væri nú það sem hjálpaði mér að halda sönsum þegar það væri allt brjálað að gera og það sem gæfi mér rosalega mikla lífsfyllingu (er einmittað hlustá magadansdiskinn núna!!).
Ég var bara MJÖG sátt við hana mjög gaman. og við stefnum á að fara aftur að ári og fá smá svona framhald á spárnar okkar!!
Spennandi tímar framundan greinilega...
29 september 2005
Birt af gudrunst kl. 23:06
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|