Ohhh var búnað skrifa heillangt blogg hér þegar hann Skuggi hoppaði uppá lyklaborðið og eyddi því öllu með einni loppu! Pirringur!
Mér datt bara svona í hug að kommenta á það að ég varað komast að því að hinn yndislegi köttur minn er heitir Skuggi er hræddur við eigin Skugga!! sá hann flýja undan honum í ofboði inní eldhúsi áðan hehe. Hann er kostulegur kallinn!!
En já svo virðist hann ekki heldur skilja hinn lögbundna útivistartíma katta og þykist mikill píslarvottur þegar honum er ekki hleypt út eftir kvöldmat! Hvernig ætti köttur sem er hræddur við eigin skugga að pluma sig úti í myrkrinu!!
Já þetta voru svona mínar helstu pælingar. Nenni ekki að endurtaka allt sem ég hafði skrifað það tekur of langan tíma og ég má ekki verða of sein í dansinn! Vil að sjálfsögðu fá pláss fremst að vanda.
04 október 2005
Birt af gudrunst kl. 19:52
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|