21 september 2005

jæja....ég ákvað sem sagt að skreppa í bíó áðan þar sem ég fór ekki í bíó í allt sumar og mín síðasta bíóferð heldur misheppnuð á hina hundleiðinlegu og lítt spennandi: strákarnir okkar.
Fór með Röggu uppí smárabíó og við ákváðum barað kíkka hvað væri í boði þegar við kæmum þangað. ákveðum svo að fara a deuce bigalow því hinar virðast allar vera frekar skrýtnar.
Nema hvað...við förum í rangan sal og endum á e-i Rússneskri vampýrumynd! Ég veit sko ekki alveg hvort ég þori að fara ein að sofa í nótt!
Myndin var MJÖG skrýtin vægast sagt! en ég allavega reyndi að vera ekki of hrædd og hlusta og sjá hvort ég skyldi ekki e-r orð (ég skyldi 4:) ).
Ég trúi ekki að við höfum farið í vitlausan sal og endað á þessari vitleysu! þetta eru svo týpískt við!