Ég sem var að vonast til að verða ekki klukkuð þar sem ég er frekar eikkað ófrumleg og óspennandi... en þar sem ég er á þreytumörkum þá kannski get ég hrist fram 5 ónauðsynlegar upplýsingar um sjálfa mig...
1. Ég var aldrei þessi barnapíu stelpa þegar ég var yngri. Á meðan allar stelpurnar í bekknum voru óðar í barnapíast út um allan bæ og töluðu um merkur og sjitt þá vissi ég ekkert hvað þær væru að tala um frekar en ég hefði vitað hvað spatúlur voru á þessum tíma. Viðurkenni það að ég er ennþá soldið smeik þegar kemur að því að barnapíast og það er m.a. ástæðan fyrir því að ég "veit" að ég er ekki tilbúin til að verða mamma.
2. Mér finnst hundasúrur ennþá góðar.
3. Ég hef þann ofur-hæfileika að vita hvar hlutir eru, þó ég sé ótrúlega gleymin þá veit ég ótrúlega oft hvar fólk leggur hluti frá sér þó enginn annar viti það og þó það sé jafnvel hlutir sem skipta mig ekki máli og jafnvel fólk sem skiptir mig ekki máli. Stundum kemur líka fyrir að ég veit hvar Axel leggur hluti frá sér án þess að ég hafi séð það, bara heyrt það...
4. Ég er feimin og óframfærin, nema þegar ég þekki fólk orðið vel að ég er ekki lengur femin þá læt ég nánast stanslaust eins og fáviti, þessvegna held ég að fólk gleymi því að ég sé feimin.
5. Ég tússaði einu sinni stjörnuna á hundinum mínum með rauðum túss ásamt systur minni, stjarnar var sko hvít og Kútur (hundurinn) var íslenskur. Í mörg ár var ég viss um að liturinn eftir tússin væri ennþá í stjörnunni.
Jæja, þá hlýt ég að vera laus allra mála...
Hinsvegar skvísur mínar, þá klukka ég ALLA meðlimi fimmkommanull, eða Stefáns, Eydísi, Eygló, Sveins og Kötlu (Ella og Erla Sigga eru búnar á sínum bloggum)
Koma svo stelpur !!!!
22 september 2005
Birt af Nafnlaus kl. 23:45
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|