Helgar (og mánudags) "pistillinn".
- Heimilið: Við (aðalega Axel samt:) settum upp hurðarnar, settum upp myndir, máluðum gluggakistur og sólbekki, þrifum og lærðum um helgina.
- Dugnaðurinn í dag: Vaknaði rúmlega 7 (fer ekki í tíma fyrr en 11) er búin að borða, fara út að labba með hundinn og vaska upp, er núna að blogga og fer svo í ræktina áður en ég fer í skólann.
- Engillinn á hægri öxlinni segir: "þú veist þú hefðir nú alveg geta nýtt þennan tíma betur fram að skólanum, þú hefðir getað verið duglegri"
- Púkinn á vinstri öxlinni segir: "Fuck it, af hverju í fja*** ertu ekki steinsofandi núna fávitinn þinn??"
- Spurningin: Er hægt að vaska upp án þess að sulla öllu þessu vatni á bumbuna á sér?
- Lausnin: Fá sér smekk í svuntustærð eða, það sem einfaldara er, að skipta svo bara um bol (þíðir lítið að minnka bumbuna, been there, done that)
- Krúttið: Hundurinn no doubt.
- Pælingin: Er í alvörunni partý í kjallaranum núna eða er fólkið þar bara endanlega að missa vitið með græjurnar í botni?
- Þarfasta þingið: I-pod, eða Poddarinn eins og hann kallast.
- Veðrið: Já, what's up with that? Á ekkert að ákveða sig með það eða hvað???
- Djammið: Ehh... hvað er það aftur?? ;)
- Einkunin í verklegu: Nóbb, "enn" að bíða...
|