11 nóvember 2005

jæja jæja hvað haldiði! eg er ekki bara með mjólkuóþol heldur hreinlega mjólkur OFNÆMI. mjög svæsið...hef svo sem alveg fundið fyrir því sjálf en hafði bara aldrei heyrt af neinu sem héti mjólkurofnæmi. En hún sagði konan að ég þyldi mjólk einmitt alls ekki.
Svo sem sagt líka bjór og rauðvín...mætti í raun drekka vodka í appelsínusafa þ.e.a.s ef ég myndi þola appelsínusafa...en ég má ekki neita appelsína vegna magabólgnanna.
Svo er ég víst mjög líklega með gallsteina og á að láta e-n sérfræðing kíkjá það...spurning hvort þetta sé smitandi? við Katla erum nú lab-partnerar....
Svo sá hún bakvandamálin mín með því að pota í lófann á mér neðst fyrir neðan litlaputta. Skrýtið!
Maður er bara eins og ég veit ekki hvað! Það mun aldrei neinn vilja nota eggin úr mér með öll þessi gölluðu gen!!