06 nóvember 2005

já það gerast skrítnir hlutir þegar mar er einn heima...
ég er núna með æði fyrir nýja laginu með Madonnu (það er skylda að klikka á linkinn og hækka í hátölurunum!!!) og ég fæ bara fiðring þegar ég heyri það... var meira að segja svo sjúk í það að mér tókst að ná í það á ipodinn minn... ég er að segja að það hefur sjaldan verið eins gaman að elda mat... grjónagrautur eldast vel undir dansi skal ég segja ykkur... eftir kvöldmat neyddist ég nú til að setja spilaran frá mér til að læra... ég pískraði mér áfram í gegnum 10 kafla í lífefnafræði með þau verðlaun fyrir augunum að hlusta sko á lagið í botni þegar ég var búin, kaflinn kláraðist og fyrst ég er nú ein heima og dansfiðringurinn fer í botn þegar ég heyri lagið þá bara sleppti ég öllu lausu og dansaði! já, ég ein heima í gardínulausu íbúðinni minni að dansa eins og ég fengi borgað fyrir það... and i loved it!!!
ég fæ líka svona óstjórnlega hreyfilöngun þegar ég heyri lagið og langar mest að fara í ræktina og hlaupa hringinn í kringum heiminn með tónana í eyrunum... þannig að heyrnatólunum verður smellt í eyrun þegar ég vakna í fyrramálið og sjáum til hvort ég stökkvi ekki bara framúr í ræktargallan og skelli mér í baðhúsið...
já kiddós, ég er með Madonnu og ABBA á heilanum, enda sjúkur laumu ABBA aðdáandi fyrir það fyrsta ;)