02 nóvember 2005

ohhh hvað haldiði það bara halda áfram að berast mér spennandi pakkar frá útlöndum :) Nú í dag kom bréf til mín frá American Red Cross með 3 skírteinum frá þeim sem ég átti að fá.
Öll eru þau fyrir sérhæfingu í björgun úr bátum. 1 fyrir kanóa, annað fyrir kayaka og hið þriðja fyrir árabáta. Þannig að ef þið lendið í bátaháska þá vitiði hver mun geta bjargað ykkur ;)
og nú er ég með hvorki meira né minna en 5 skírteini frá American Red Cross upp á alls 6 próf!!