11 desember 2005

Elskurnar mínar...langaði barað lauma þessu að ykkur því ég veit hvernig próflesturinn fer með húðina.

Þetta er alveg dúndur hunangsmaski sem hreinsar upp öll óhreinindi eins og ryksuga.
1 msk hunang
2 msk eggjahvíta

Þetta er svo þeytt saman þar til það freyðir. Borið á andlitið með bómullarhnoðra og látið þorna. Svo er þetta bara skolað af með volgu vatni og maður er með æðislega fína húð á eftir. Laus við (næstum) allar prófbólurnar.

Einnig finnst mér líka mjög gott að skella saman hálfu avakadói, hálfum banana, 2 msk af hunangi. Stappa vel saman og láta liggja á andlitinu í 10-15 mín. Þetta er mjög endurnærandi maski sem gerir húðina frísklega og hreina.

Jæja farið vel með ykkur :)