Ég er búin að senda Davíð póst um að ég vilji fá svörin við spurningunum, og síðan ætlar Þórunn að hringja í hann í dag. Ég er samt ekki að nenna að læra, er með hausverk og er komin með ferðatöskurnar fram og langar alveg rosalega að pakka núna. Ég þarf líka helst að vera búin að pakka fyrir fimmtudaginn því þá flyt ég heim til mömmu og pabba til að vera party stopper. 16 ára bróðir minn hélt virkilega að hann fengi að vera einn frá fimmtudegi til mánudags (það eru allir að klára prófin í þessari viku) og er örugglega upptekinn núna við að afbóka partýliðið ;).
13 desember 2005
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|