Ég var að fatta það að frá og með 1.des varð ég starfsmaður nektarklúbbsins Óðals. Það eru nú ekki margar ykkar sem geta státað af því að hafa unnið á nektarklúbbi ;) Ég ætla nú samt ekki að taka neina súludansa heldur ætla ég að fara í dag og skila lyklunum mínum og segja formlega upp. Þetta verður í fyrsta skiptið sem að ég verð ekki að vinna neitt, því ég nenni ekki að finna mér nýja vinnu fyrir 4 mánuði (ætla ekki að fara í apótek fyrr en í sumar). Ég verð því bara heimavinnandi húsmóðir með barn og hund og sendi kallinn út í aukavinnu um helgar.
En annars gengur lítið að læra, er ekki alveg að nenna þessu. Nenni samt ekki heldur að fara í sumarpróf þannig að ég verð að fara að koma mér í gang.
02 desember 2005
Birt af Nafnlaus kl. 13:52
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|