pælið í því hversu "yndislegt" það er að vera heima allan daginn, vera búin að opna glugga hér og þar í íbúðinni til að fá ferskt loft svo mar mygli ekki að innan sem utan og svo allt í einu í þínu mesta sakleysi þá fyllist íbúðin af reykingarfílu!!! sem er um það bil vondasta lykt í heimi!!! já, beyglan í kjallaranum fer alltaf út að reykja og mökkar beint fyrir neðan stofugluggan hjá mér, og hún er mjög oft heima á daginn og mökkar ekkert lítið sko... þannig að þar með er einn gluggi á íbúðinni sem er bara ónothæfur! og mar getur ekkert sagt því ekki á ég andrúmsloftið (þó mér fyndist að ég ætti að eiga ákv friðhelgi...)
ég segi bara, af hverju reykir fólk?!?!
well, back to the books...
ps, ég er líka pirruð því ég eyddi ALLT of löngum tíma í að finna út hvað umritunarbóla í RNA væri!!! endaði með því að finna það á netinu því það fo***g stendur ekki í námsefninu!
peace out
01 desember 2005
Birt af Nafnlaus kl. 16:22
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|