jæja litla veiðiklóin kom með enn einn fuglinn heim í dag...og sá var held ég ekkert handa mér. Hann fór með hann undir stofuborðið og var einmitt oft búnað verað fela sig þar í dag. Svo áðan þá hafði hann dregið fuglinn fram á gólf. En ég veit ekki hve lengi hann var undir stofuborði allavega síðustu 2,5 klst því þá kom Skuggi inn, en líklega lengur.
Þvílíkt að drösla fuglinum þangað.
Svo var hann bara búinn að éta megnið af honum. Þvílíkt ógeð! Mér var alltaf sagt að maður ætti barað vera glaður þegar þeir koma með svona og láta sem þeir séu duglegir en þetta er farið að vera ansi mikið! 3. fuglinn síðan í september og það eru engir fuglar úti....
vá ég veit ekki hvað skal gera við litla kall.
06 janúar 2006
Birt af gudrunst kl. 20:30
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|