Æjæjæj, þegar mar lofar Ásu sinni að blogga þá verður mar að blogga :)
ástæða bloggleysis er, eins og ég sagði henni, að þegar mar á loksins svona mikinn lausan tíma þá bara veit mar ekki hvað mar á að gera við hann (þrátt fyrir langan verkefnalista) og endar yfirleitt með því að eyða honum framan við tölvuna eða sjónvarpið. Fór reyndar áðan og verslaði bækurnar, sjitt þyngdin á 3 bókum, pokin hefði ekki haft þetta af ef ég hefði haldið í höldurnar!! Síðan fórum ég og Jóna Harpa (sem var svo elskuleg að koma með mér því ég nennti ekki að bíða í laaaangri röð í bóksölunni en svo var bara eila lítið að gera) á Kaffitár í Þjóðminjasafninu og vorum svo heppnar að hitta þar fyrir besta kaffibarþjón landsins hana Ólöfu okkar. Hún skenkti okkur dýrindis kræsingum (mér bara heilsuskyri, í átaki, þið vitið) og gaf okkur að smakka nammi-karamellu-kaffi sem gefur manni von um að geta gripið til örþrifaráða í næstu prófa tíð! Annars er af henni að frétta að hún var að kaupa sér íbúð, til hamingju með íbúðina Ólöf mín :*
Fyrir utan þessa sérlega ánæjulegu vinafundi í dag er ekkert að gerast hjá mér... bara skóli (ef hann getur kallast það ennþá) og ræktin. Er aðeins búin að fikta við lestur í lyfjagerðafræði og ætla að reyna að hella mér í margt annað í dag fyrst að bækurnar eru komnar í hús...
Í fréttum var þetta helst, fréttir til les gelles verða sagðar síðar á önninni, þegar til tíðinda dregur (þeas gifting eða ólétta ;)
12 janúar 2006
Birt af Nafnlaus kl. 15:51
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|