28 febrúar 2006

Þegar ég fór inn á Ugluna mína í dag þá sá ég nýjustu nýungina og hugsaði: hey, ég er ekki búin að heyra af þessu, ætli þeir séu farnir að vera með lesnar fréttir á uglunni, því þetta var svona player sem var inná upplýsinga-kassanum mínum (þar sem heimilisfangið og símanúmer og svona er) og ég hækkaði voljúmið í tölvunni til að heyra tilkynningarnar, þá var bara eitthvað lag að spilast! þá hélt ég að háskólinn væri orðinn desperat og spilaði klassíska tónlist fyrir okkur til að bæta námsárangur (svo þeir fengju meira borgað) þangað til ég fattaði hvaða lag þetta var, þá var það afmælissöngurinn!!! já, háskólinn óskaði mér til hamingju með daginn með því að spila afmælissönginn fyrir mig instrumental!
Annars þá hef ég verið sjálf svo djúpt sokkin í verkefnavinnu að ég hef gleymt afmælum hjá vinkonum mínum, skamm skamm ég... þannig að ég ætlaði bara að koma með (betra seint er aldrei er mitt motto) afmæliskveðjur núna til Erlu Páls (16.feb) og Silju (17.feb) til hamingju með daginn um daginn!!! (svona ef þið fyrir e-a tilviljun dettið hér inn og lesið þetta ;)
Annars er ég bara fegin að sjá fyrir endan á þessum verkefnum (hef ómeðvitað "gleymt" því að við eigum allar skýrslur eftir) og maður geti nú farið að kíkja í bók... hef líka fundið að út að eins og próftaflan lítur út núna þá er hún mjög góður pískur til að píska mann áfram í skólabókarlestrinum... verðum að fá að breyta þessu... bara vonandi að allir séu sammála mér!