Takk fyrir síðast stelpur mínar, próftaflan mín er líka komin og ég er bara held ég nokkuð sátt við hana en hún lítur svona út:
Greining og mótun hegðunar 29.apríl
Lífeðlisleg sálfræði 3. maí
Aðferðafræði 9.maí
Tölfræði 2 13. maí
Þetta eru allt rosa mikil lestrarfög og er því gott að fá nokkra daga á milli. Svo verður náttla rosalegt djamm 13. maí, vá mig er farið að hlakka til að komast í sumarfrí. Er að vona að þurfa ekki að taka sumarpróf eins og ég er búin að gera síðustu tvö sumur, það væri rosa góð tilbreyting að þurfa ekki að hugsa um skólann í þrjá mánuði.
28 febrúar 2006
Birt af Nafnlaus kl. 13:30
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|