22 febrúar 2006

Ég vil byrja á því að minna gellurnar á hittinginn hjá Ellu sprellu og er hægt að lesa nánar um það fyrir neðan þetta blogg.

Annars er komið að klukkinu:

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:
1. Sjoppa
2. Kaffihús
3. Lyf og heilsa
4. Hef ekki verið á fleiri stöðum en næsta starf mitt verður í apótekinu á landspítalanum við Hringbraut.

Fjórar kvikmyndir sem að ég gæti horft á aftur og aftur:
1. Dumb and dumber
2. True lies
3. The fifth element. Veit ekki hversu oft hún hefur endað í tækinu þegar ég get ekki sofnað.
4. Veit ekki alveg hver á að vera mynd númer 4. Er alltaf að horfa á sömu 10 myndirnar.

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
1. Bandaríkin. California er í uppáhaldi.
2. England (ca 15 sinnum)
3. Spánn
4. Noregur. Hef farið þangað með norrænu og keyrði um á húsbíl.

Fernt matarkyns sem að ég held upp á:
1. Rjúpur
2. Indverskur kjúklingaréttur sem mamma gerir (annars er allt gott sem mamma eldar)
3. Skyndibiti
4. Nammi. Get ekki verið án þess

Fjórir staðir sem að ég vil helst vera á núna:
1. Los Angeles
2. Ástralíu, er ekki sumar þar núna?
3. Englandi. Hef ekki séð litlu dúlluna sem systir mín á í heilt ár.
4. Las Vegas, vantar bara slatta af pening til að geta verið þar í meira en einn dag.

ég klukka:
1. Kristínu Björk (bara að fá aðgang hjá Guðrúnu Lind tölvusnillingi)
2. Guðrúnu Sveins
3. Henný
4. Gyðu