Jæja þá er ein yndisleg helgi búin. Búin að eyða henni í fjáröflun fyrir Vökuna og svo að útbúa stúdentakort. Algjör snilld bara!
Hitti líka Kötlu mína niðrí Haga á lau tilað farað læra og þar var líka hún Ella mín að steypa súkkulaðistíla í miklum fíling, en þeir ku virka vel til að verða sólbrúnn. Endilega prófiði.
Svo kláraði ég líka ritgerðina mína og fyrirlesturinn, glæsilegur árangur þar!
En það sem mig langaði svo að gera fór allt fyrir bí! Skrópaði í magadans á lau, lærði ekki rússnesku, las ekkert í yndislegu bókinni minni sem ég mæli algjörlega með "the undomestic goddess" eftir Sophie Kinsella sem er einn af mínum uppáhalds rithöfundum, hitti ekki vini mína til að gera neitt skemmtilegt (þó verkefnið okkar Kötlu um koffeinhylki sé eiginlega bara ein snilld). gerð heldur ekki leiðinlegu hlutina sem ég hef ætlað að gera alltof lengi! eins og t.d. að ehemmm ryksuga. ætti helst að farað bjóða gestum heim og þá neyðist ég til þess! Kannski næsta helgi verði betri og ég læri e-ð uppúr bókunum, en ekki bara verkefni og hitti vini mína kannski líka :)
Svo er hann kisi litli slasaður:( ég kallaði á hann um hálf 11 leytið á föstudagskvöldið að koma inn og hann kemur alltaf þegar ég kalla. í þetta skiptið kom hann þó ekki. kl.12 var ég margbúin að kalla á hann og ákvað að fara í úlpu og skó og út að leita að honum. en þá sá ég hvar hann staulaðist áfram að reynað komast heim. hann hafði þá lent í e-u, jafnvel bílslysi, haltraði þetta litla grey og þvílík sár í andliti, allt hárið bara farið af. Ég hefði svo innilega viljað kúra hjá litla veika kallinu mínum alla helgina en gat því miður ekki! Nú liggur hann við hlið mér með rassinn uppí loftið. ótrúlega sætur!
27 febrúar 2006
Birt af gudrunst kl. 00:07
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|