Sælt veri fólkið, það er orðið soldið langt síðan að ég skrifaði hérna þannig að ég ákvað að setja nokkra stafi hérna. Ég er loksins flutt í bæinn og það er rosa gott að sleppa við að taka þessa rútu tvisvar á dag og geta bara röllt heim eftir skóla:) ég fór á árshátíð á föstudaginn og skemmti mér líka svona asskolli vel en það vantaði soldið uppá úrvalið á karlpeningnum, já ég er enn að leita að draumaprinsinum. Vona að ykkar strákamál gangi betur en mín, kanski ég verði að fara að kíkja á strákana aftur sem eru í lyfjafræðinni, hihi. Jamm ég er farin að halda að ég verðu gömul piparjunka. En hvernig er þetta ætlum við ekki að fara að hittast, fá okkur bjór,slúðra því að ég veit ekkert hvað þið hafið verið að gera undanfarið ár. BORÐA við verðum náttla að fá okkur að borða, ég trúi því ekki að að ég skuli ekki hafa sett matinn í fyrsta sæti!!!! En talandi um mat þá ætla ég að fara að finna mér eitthvað að borða:) Vonandi heiri ég í ykkur fljótlega en þangað til hafið þá augun hjá ykkur því að draumaprinsinn minn hlýtur að vera hérna einhversstaðar!:)
13 febrúar 2006
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|