21 mars 2006

úff ég varað komúr magadansi og er sem dauð! aldrei lent í öðrum eins tíma (hann var samt frábær og æðislega skemmtilegur!) bara svo ótrúlega ótrúlega erfiður!
Við erum að æfa svona Tabla dans, Tabla er tromusóló og er mjög hratt. Tabla dansarnir eru þannigað maður þarf að hrista sig mjög hratt í takt við tónlistina, endalaust shimmie, shimmie, shimmie og hreyfa sig mjög hratt. Fáránlega erfitt og allar þessar hröðu fínhreyfingar gera mann ótrúlega þreyttann! Undir lokin megnaði ég ekki að shimmia heldur bara rétt svona lullaðist áfram (sem er samt erfitt þegar maður erað snúa sér í e-a brjálaða hringi með hárið í allar áttir).

Guð minn góður hvað ér þreytt en hvað þetta er gaman! Þetta er rosalega skemmtilegur dansstíll, jafnvel minn uppáhalds!

Pabbi gerðist svo góður áðan að bjóða mér á Á Næstu Grösum í eðal fínt soyabauna og gulrótargratín með spínati og soyaosti. nammi namm!! æði! sósan á því er svipuð sósunni á grænmetislasagneanu mínu. best í heimi! Svo er brauðið þeirra líka svo ofur gott. Ó nammi! ég gæti étið endalaust þarna ef maturinn væri ekki svona seðjandi! Maður nær aldrei að klára skammtinn sinn!
Ættum við að hafa næsta Vegamótahitting á næstu grösum?