20 mars 2006

Ég fór í mínu mesta sakleysi í ræktina áðan, var að drífa mig svo mikið að mæta í body pump að ég gleymdi skónnum heima þannig að ég "skaust" heim og náði í þá og þegar ég kom aftur í Baðhúsið hitti ég Eygló og því miður (sérstaklega fyrir rassinn á mér) þá tókst henni að plata mig í spinning.... úff, verð bara að segja að ég er mjög ósátt við að ég sé ekki orðin súper fitt og flott miðað við hvað þetta tók á!! Eygló vildi reyndar meina að bossinn á manni vendist þessu en ég bara trúi því varla....
Annars er ég vel sátt við djammið á okkur á föstudaginn! það eru komnar myndir á Tinktúru og ég verð bara að segja mér til óvæntrar ánægju þá er þar að finna mynd af mér sem er bara sæmileg!! ótrúlegt en satt!
Við Eygló (aka my lesbian breast buddy) vorum annars mjög duglegar að kynna okkur fyrir krökkunum á yngri árum og þar sem okkur tókst það svona glymrandi vel og til að viðalda heiðri þeirra ætla ég að smella hér inn link á Lyfjafræðiskvísurnar á 2.ári og þar er m.a. hægt að finna linka á myndir síðan á föstudaginn, mjög mis... já, látum það bara duga að svo stöddu