30 mars 2006

Ég fór í gær í óperuna og það var alveg hörkugaman! Við Jóna vinkona sáum nemendasýninguna Nótt í Feneyjum til að sjá Berglindi okkar syngja í sýningunni en hún er að læra söng og stóð sig einstaklega vel! Þetta er s.s. óperetta þar sem er bæði leikið og sungið en lögin eru sungin á þýsku og allir söngvarar og hljóðfæraleikarar eru nemendur í tónlistarskólum í rvk og fóru með þetta eins og fagmenn!! Ekki spillti svo fyrir að óperettan sjálf var skemmtileg (og hljómsveitarstjórinn ekki slæmur fyrir augað ;)
Þannig að ég mæli hiklaust með að kíkja á þetta (kostar bara 500 kjell) fyrir þá sem eru orðnir menningarlega úrkynja og langar að gerast hámenningarlegir 1,2 og bingo fyrir slikk og ingen ting...