ok...ég geri mér vel grein fyrir því að fjsk mín er kannski ekki eins og flestar aðrar...en ... áðan var ég að borða með pabba Á næstu grösum (mæli með baunabuffinu btw) og auðvitað þekkir hann allt starfsfólkið spjallar við það (og já það mætir líka allt tilað afgreiða okkur svo gaman hafa þau af honum) en það sem ég ætlaði að segja ... áður en við fórum út hafði hann skráð allt starfsfólkið í norðurlandameistara mótið í uppvaski (!!!) sem fram fer í Smáralindinni á morgun!
Hver annar hefði nokkurn tíman látið sér detta það í hug!!
29 mars 2006
Birt af gudrunst kl. 20:07
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|