Þetta hér er rosalega spennandi, ég bara varð að deila þessu með ykkur:
Fornleifafræðingar hófu í dag uppgröft í fjalli fyrir ofan bæinn Visoko í Bosníu, en samkvæmt gamalli þjóðsögu er fjallið í raun ævaforn pýramídi. Stjórnandi uppgraftarins er bosnískur fornleifafræðingur, Semir Osmanagic, sem segir fjallið líkjast pýramídum í Suður-Ameríku, sem hann hefur rannsakað.
Fjallið er um 650 metra hátt og nefnist Visocica. Reynist fótur fyrir þjóðsögunni verður þetta í fyrsta sinn sem pýramídi finnst í Evrópu. Frumrannsóknir á fjallinu hafa leitt í ljós að hlíðar þess halla nákvæmlega 45 gráður og liggja upp að flötum toppi.
Undir þykkum moldarlögum hafa fundist steinlagðar stéttar, gangnamunnar og stórir steinar sem gætu verið hluti af ytra byrði pýramída. Á gervitunglamyndum hafa sést tvær aðrar pýramídalagaðar hæðir í Visoko-dalnum.
Uppgreftrinum verður til að byrja með haldið áfram í um hálft ár, en Osmanagic segir að frumniðurstöður ættu að liggja fyrir eftir þrjár vikur.
-> hugsið ykkur hvað það er merkilegt að loksins hafi fundist pýramídar í Evrópu!! Fær þetta ykkur ekki til að langa til Bosníu og skoða þetta fjall? Ættum við ekki að skipuleggja ferðalag þangað? Við gætum skoðað svo margt annað í leiðinni en þetta finnst mér bara æðislegt :) 3 vikur og þá fáum við að heyra niðurstöðurnar!!
|