Í gær fór ég í fermingarveislu. Fín fermingarveisla. Mér leiddist ekkert voðalega mikið þar eins og er yfirleitt venjan í fermingarveislum. Það var bara fínt að sitja og tjatta inni í bílskúr. Þó lenti ég í örlitlum vandræðum. Þannig er mál með vexti að fátæki námsmaðurinn ég á bara einar “fínar” buxur, en þær eru bara ekki eins fínar og þær annars gætu verið því það er gat í klofinu á þeim. Mér fannst nú lítið mál að redda því bara með því að næla gatið saman með öryggisnælu, þið vitið svona sikkersnælu. Ég á sko fullt af þeim í mínum fjórum saumakössum. Já! Ég á fjóra saumakassa!! því móðir mín heldur alltaf í þá hefð að útbúa svona neyðarsaumakitt þegar dætur hennar flytja að heiman, ef það skyldi nú koma upp saumsprettutilefni eða annað eins. Ástæðan fyrir því að ég á svona marga er sú að ég flyt alltaf heim aftur á milli þess sem skipti um skólahíbýli. Og alltaf fæ ég saumakitt. Það var nú ekki fyrr en fimmti kassinn var að fæðast að ég hafði nú vit á að afþakka slíkan kassa, þar sem hinir 4 voru nánast ósnertir vegna þess að Guðrún systir fékk húsmóðurgenin mín og að þeim sökum er ég bara ekkert voða mikið fyrir þetta saumaves. Myndi rukka hana um genin ef ég væri ekki að stórgræða á því að hún er eins og hún er;) Algjört yndiJ:)
En anyways, þá lenti ég nú í þeirri ólukku að týna sikkersnælunni í miðri fermingarveislunni. Hvernig fer maður að því að týna slíkri nælu án þess að hún stingi mann í rassgatið??? Mar bara spyr sig. Þar sem þetta gat var svolítið stórt þá langaði mig nú að finna næluna svo ég þyrfti ekki að vera með samanklemmdar lappir það sem eftir var af veislunni. Átti ágætt móment með Konný þar sem ég stóð með buxurnar á hælunum og sagði henni að leita að helv.. nælunni. Svoleiðis gerir maður alveg í fermingarveislum!!! Ok við vorum reyndar inni á klósetti;) En blessuð nælan fannst ekki svo ég neyddist til að vera alveg óþolandi dömuleg það sem eftir var af veislunni svo að fólk myndi nú ekki sjá uppí það allra heilagasta. Að vísu hefði það bara séð kóngulóarvef...sökum þess hversu lítt spennandi my love life has been lately:( hehe datt samt í smá stund í hug að helv... öryggisnælan hefði kannski farið uppí u know what hole;) tíhí þá væri nú kannski komin annar póll í hæðina í umræðunni um öruggt kynlíf;););)
Jæja verð að halda áfram að læra pís át Dísa Diggs;)
14 apríl 2006
Birt af Eydís kl. 18:38
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|