Á morgnana núna undanfarið, og jafnvel seinnipart dags, þá á ég að til að efast aðeins um geðheilsuna; "er ég ekki örugglega að fara í vorpróf en ekki jólapróf?" ég meina, hver pantaði þennan snjó?!?!? líka skondið hvað veðrið sýnir á sér allar hliðar á 1-2 dögum, þá sér maður allar veðurgerðir, sem er ágætt svosem, þá finnst manni ekki eins og vorið sé að fljóta framhjá manni á meðan maður situr sem fastast við skólabækurnar.
Annars er ég búin að næla mér í versta fylgikvilla prófatíðar, ég get ekki sofnað á kvöldin! hef verið að skríða uppí þegar sex&the city byrjar, horfa á það og súnka mér í svefngírinn, en svo hef ég ekki getað sofnað fyrr en í fyrsta lagi kl 1! hugsandi um hvað ég hefði átt að vera duglegri um daginn, hvað ég þarf að vera dugleg á morgun, að ég gæti verið að lesa núna í staðin fyrir að liggja og stressa mig upp og svo að ég eigi eftir að finna mér föt til þess að vera í brúðkaupinu 6.mai og svo á ég náttúrulega eftir að æfa sönginn fyrir það og svo... you get the point, kannski einhver sem kannast við þetta? er að spá í að koma í veg fyrir þetta í kvöld bara með því að fara seint að sofa, hlítur að virka...
annars langaði mig bara til að eitthvað blogg hreyfðist, amk er enginn annar að blogga, svona þegar maður þarf helst á því að halda í einangruninni ;)
hvað er annars að frétta af próflokaparty?
26 apríl 2006
Birt af Nafnlaus kl. 15:42
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|